Efnisfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum fá nemendur yfirsýn yfir helstu efni og efnisflokka sem notaðir eru við bygginga- og mannvirkjagerð með áherslu á rétt efnisval fyrir ákveðin verk og umhverfi. Fjallað er um tré sem smíðaefni og uppbyggingu þess, plötuefni, festingar, steinsteypu, múr og múrefni, málma og bendistál, pípulagnaefni, plastefni, málningar- og spartlefni, fúgu- og þéttiefni, lím, einangrun, gler, þakefni, klæðningarefni, gólfefni og veggfóður. Gerð er í grófum dráttum grein fyrir uppruna efnanna, flokkun þeirra, merkingum, eiginleikum og hlutverki. Kennslan fer að mestu fram með verkefnavinnu þar sem nemendur læra að afla sér upplýsinga með margvíslegu móti, s.s. af netinu, og með fyrirlestrum.
Efnisatriði/kjarnahugtök: Mótatimbur, timbur í burðavirki, smíðaviður, límtré, mjúkviður, harðviður, parket, spónaplötur, harðtex (masónít), trétex, spænisteyptar plötur (heraklid), krossviður, MDF-plötur, álplötur, málmplötur, steniplötur, plastplötur, harðpressaðar trétrefja-plötur (trespa), viðarspónn, sandpappír, vind- og þakpappi, steinsteypa, léttsteypa, múrhúð, múrblanda, sement, sandur, íblöndunarefni, v/s-hlutfall, flísar, náttúrusteinn, leirsteinn (tígulsteinn), bendistál, kambstál, slétt stál, stálvír, bendinet, múrnet, ál- og stálprófílar, ál- og stálbitar, stálrör, tengingar, eirrör, þéttihringir, plaströr, álpexrör, rör-í-rör, dósir og tengi, tengikassar, deilirör, frárennslislagnir, jarðvatnslagnir, rotþrær, brunnar, sogventlar, lokar, blöndunartæki, kranatengi, ofnar, hreinlætistæki, dælur, lím, fernis, olíumálning, plastmálning, lökk, spartlefni, fúavörn, sílan, sementsmálning, grunnur, blýmenja, bæsefni, viðarolíur, kítti og fúguefni, hampur og ull, gúmmí, dúkar, gólfplötur, korkplötur, teppaplötur, gerviteppi, ullarteppi, gólf- og flotefni, veggfóður, veggstrigi, loftaplötur, undirlagsefni, suðuþráður, steinull, glerull, einangrunarplast, korkur, rúðugler, steypt gler, þráðgler, glersteinn.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- meðhöndlun almennra byggingarefna og notkunarsviði þeirra
- flokkun byggingarefna og gæðum eftir tegundum
- áhrifum tilbúinna efna á umhverfið (umhverfisáhrifum)
- helstu viðartegundum og notkun þeirra í smíðavinnu
- uppbyggingu og eiginleikum helstu viðartegunda
- flokkun og notkun byggingatimburs hér á landi
- meðferð og geymslu á timbri og trévörum
- gagnvörðu timbri og notkunarsviði þess
- mismunandi plötuefni sem notað er í gróf- og fínsmíði
- helstu gerðum krossviðar og notkun hans í gróf- og fínvinnu
- helstu gerðum spónaplatna og notkunarsviði þeirra
- trétrefjaplötum og notkunarsviði þeirra
- plötu- og klæðningaefnum úr plasti, málmum og gipsi
- framleiðslu, uppbyggingu og notkun viðarspóns
- algengustu viðarlímtegundum og notkunarsviði þeirra
- steinsteypu og öðrum byggingarefnum úr steinefnum
- flokkun og eiginleikum jarðefna til bygginga- og mannvirkjagerðar
- samsetningu, hörðnun og flokkun steinsteypu
- steypustyrktarjárni og tilgangi þess í steinsteypu
- múr og múrblöndum og flokkun þeirra
- milliveggjaplötum og hleðslusteini og notkunarsviði þeirra
- gerð og notkun náttúrusteins og flísa á yfirborðsfleti
- meðferð og notkunarsviði flotefna og þunnhúðunarefna
- algengustu efnum og lagnaútfærslum í pípulögnum
- helstu tegundum málmröra sem notuð eru í pípulögnum
- algengustu plastefnum sem notuð eru í vatnslagnakerfi
- helstu gerðum tengja og tengiaðferðum fyrir mismunandi efni
- algengum tegundum loka, stjórn- og hreinlætistækja
- einangrun rörlagna og rör-í-rör lagnakerfið
- málningar-, þétti-, spartl- og viðgerðarefnum sem notuð eru í byggingariðnaði
- samsetningu og eiginleikum málningar, lakk- og bæsefna
- hlutverki, flokkun og eiginleikum þéttiefna og spartla
- eiginleikum, flokkun og notkunarsviði mismunandi viðgerðarefna
- merkingum og áhættuflokkum málningar-, þétti- og viðgerðarefna
- gólf- og veggefnum úr plast- og textílefnum, línolíu, korki og pappír
- algengustu gerðum gólfdúka og gólfflísa
- uppbyggingu helstu gerða gólfteppa, kostum þeirra og göllum
- samsetningu og notkunarsviði korks og korkflísa
- samsetningu og eiginleikum algengra veggefna og veggfóðurs
- einangrunarefnum og einangrunargleri
- muninum á hita-, hljóð- og rakaeinangrun
- algengustu einangrunarefnum og eiginleikum þeirra
- framleiðslu og flokkun á einangrunargleri
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja efni miðað við notkunargildi og aðstæður
- lesa flokkun efna (t.d. frá framleiðendum)
- velja þau efni sem við eiga og henta hverju sinni
- greina hvaða efnum má blanda saman og hverjum ekki
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja tré og annað byggingarefni fyrir mismunandi verkefni innanhúss og utan
Nánari upplýsingar á námskrá.is