Markviss þjálfun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: HEST2KF03, REIM2KF05, FÓHE2HU03, VINH3SH10
Í áfanganum þjálfar nemandinn bæði sjálfstætt og undir eftirliti einn hest sem að hann fylgir eftir alla önnina. Setur sér markmið og gerir þjálfunáætlun fyrir hestinn. Markviss þjálfun byggð á þjálfunarstigum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu þáttum þjálfunarlífeðlisfræði og þjálfunar hesta.
- hvað liggur til grundvallar æfingunum opnum sniðgangi og að láta hestinn ganga aftur á bak.
- gangtegundum íslenska hestsins og hvað liggur til grundvallar þjálfunar þeirra.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
- nálgast fag sitt af ábyrgð og virðingu.
- hefur gott vald á eigin líkama, ásetu og stjórnun á hestbaki.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta þjálfað og bætt sinn eigin hest.
- hafa mjög gott vald á öllum ásetum og kunna að beita þeim rétt við þjálfun hestsins.
- geta notað sér reiðvöllinn og fjölbreyttar reiðleiðir markvisst við þjálfun hestsins.
- hafa vald á gangtegundaþjálfun og geta riðið allar gangtegundir nema skeið.
- hafa gott vald á hraðastjórnun og gangskiptingum.
- geta látið hestinn stækka og minnka rammann, á feti og brokki.
- hafa vald á æfingunum opnum sniðgangi (á feti) og að láta hestinn ganga aftur á bak.
- geta framkvæmt réttar gangskiptingar í jafnvægi.
- knapi og hestur í andlegu og líkamlegu jafnvægi.
- hafa stjórn á formi hestsins.
- að nota mismunandi fimiæfingar þegar við á til að bæta hestinn.
Nánari upplýsingar á námskrá.is