Fyrri hluti
Einingafjöldi: 10
Þrep: 2
Forkröfur: HEST1GF05, REIM1GF05, FÓHE2HU03, VINU2FH02
Í áfanganum fer fram kynning og verkleg þjálfun á ýmsum störfum í hestamennsku. Meginviðfangsefni áfangans er að nemandinn fái að aðstoða við og framkvæma helstu verk sem unnin eru varðandi hrossahald starfsnámsstaðarins og auki þar með þekkingu sína, verkfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Fái innsýn í stjórn og rekstur tamningastöðvar/hrossabús/hestatengds ferðaþjónustufyrirtækis svo og þjálfun í mannlegum samskiptum. Nemandinn á að fylgjast með andlegu og líkamlegu heilbrigði hesta s.s. ástandi járninga, heilbrigði fóta ásamt fóðurástandi og almennu heilbrigði. Nemandinn heldur dagbók yfir allt tímabilið þar sem koma fram lýsingar á daglegri vinnu auk lista yfir unnar klukkustundir og skrifar verklýsingar á verkþáttum starfsnámsins. Lögð er áhersla á að starfsneminn fái að aðstoða við umsjón og hirðingu hesta á starfsnámsstaðnum og fái tækifæri til að aðstoða við grunnþjálfun á a.m.k. 3 hestum. Starfsþjálfunin fer fram að sumri. Það þarf að skila minnst 240 klukkustundum á ekki skemmri tíma en 6 vikum til að uppfylla skilyrði áfangans. Vinnutíminn skal falla að því starfi sem fram fer á starfsnámsstaðnum. Nemandi finnur sér sjálfur starfsnámsstað og umsjónarmann, sem verkefnisstjóri skólans þarf að samþykkja áður en starfsnám hefst. Hlutverk umsjónarmanns er að stjórna starfsnáminu á staðnum, kenna nemandanum og meta framvindu námsins.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- viðteknum starfsaðferðum og vinnulagi sem nýst getur í hestamennsku
- starfs- og ábyrgðarsviði starfsnema á starfsnámsstað
- hirðingu og fóðrun hrossa
- mismunandi vinnuaðferðum, nálgun við þjálfun hesta
- mati á andlegu og líkamlegu heilbrigði hrossa
- grunnþjálfun hesta
- hringteymingum og vinnu við hönd
- markvissum vinnubrögðum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tileinka sér viðeigandi vinnubrögð á starfsnámsstað
- leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
- umgangast hesta og annast þá á réttum og öruggum forsendum
- leggja mat á andlegt og líkamlegt heilbrigði hesta.
- nota helsta búnað og aðstöðu sem fylgir greininni.
- hugsa rétt um hesta, fóðra þá og annast þá með tilliti til andlegs og líkamlegs heilbrigðis þeirra.
- nýta sér fjölbreyttan búnað og aðstöðu í greininni.
- nýta sér markviss og fjölbreytt vinnubrögð við grunnþjálfun hrossa
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sinna grunnþáttum er lúta hirðingu, fóðrun og aðbúnaði hesta
- umgangast hesta og annast þá á réttum forsendum
- leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
- grunnþjálfa hesta með mismunandi þjálfunaraðferðum.
- greina rétta og góða járningu fótstöðu.
- meta andlegt og líkamlegt heilbrigði hesta
Nánari upplýsingar á námskrá.is