Talnareikningur, algebrugrunnur og hnitakerfið
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Fyrri undibúningsáfagni í stærðfræði. Helstu viðfangsefni eru talnareikningur, algebra, jöfnur, hlutföll og prósentur, tvívítt hnitakerfi og jafna beinnar línu. Áhersla er lögð á dæmareikning með uppsettum dæmum til að þjálfa vel grunnatriðin og efla sjálfstraust nemenda gagnvart stærðfræði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnreikniaðgerðunum fjórum
- forgangsröð aðgerða
- einföldum veldareikningi
- almennum brotum
- grunnatriðum í algebru
- einföldum hlutfalla og prósenturreikningi
- tvívíðu hnitakerfi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna einföld dæmi án reiknivélar
- liða og einfalda algebrustæður
- leysa uppsettar fyrsta stigs jöfnur
- vinna með hlutföll og leysa einföld prósentudæmi
- vinna með jöfnu beinnar línu, finna hallatölu og skurðpunkta við ása hnitakerfis
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna
Nánari upplýsingar á námskrá.is