varmajöfnuður og eimur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: VÉLF1AE05, VÉLS2KB05
Í þessum áfanga læra nemendur hvernig orkan í eldsneytinu breytist m.a. í hreyfiorku og varmaorku og hvernig hún nýtist til að knýja skipið áfram. Farið verður yfir grunnþætti gufukatla og eimframleiðslu. Nemendur læra að útleiða formúlur sem koma fyrir í námsefninu, útskýra gildi breytnanna í formúlunum og beita þeim á viðeigandi hátt við lausn verkefna. Farið í útreikninga á dælukerfum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- umbreytingu á orku við notkun brunavélar, varmajöfnuð og nýtingu orku
- nýtingu orku í brunavélum og nýtingu orku við að knýja skip áfram
- mótsstöðu skipa í sjó og olíunotkun
- sveigju skipsskrúfu, skrikun hennar, skrúfulínuriti, afkastalínuriti
- neðra og efra varmagildi olíu og aðferðum við mælingu varmagildis
- fullkomnum bruna og orsökum ófullkomins bruna
- fræðilegri loftþörf, loftaukatölu og raunverulegri loftþörf brunavéla og katla
- notkun eims við aflfærslu, notkun á eimtöflum, myndunarvarma og nýtni ketils
- mismuni á vatnsrörakatli og reykrörakatli
- aflþörf dælukerfa
- kennilínu miðflóttaaflsdælu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna varmagildi eldsneytis út frá efnasamsetningu þess
- lesa út úr eimtöflum
- lesa út úr h-t linuriti
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera varmajöfnuð fyrir vélkerfi
- finna leiðir til olíusparnaðar um borð í skipum
- setja fram útreikninga á skipulegan og snyrtilegan hátt
- gera varmajöfnuð fyrir dieselvél og ketil
Nánari upplýsingar á námskrá.is