-rafalar og -spennubreytar, Jafnstraumsvélar, þrífasa riðstraumsmótora
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: RRVV2RA03
Í þessum áfanga er fjallað um jafnstraumsvélar, þrífasa riðstraums -mótora, -rafala og -spennubreyta. Tengdar eru ýmsar rafvélar, gerðar prófanir og mælingar á þeim til skýrslugerðar. Fjallað er um merkiskilti og upplýsingarit fyrir mismunandi rafvélar og notkun þeirra.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- virkni jafnstraums -mótora og -rafala, þrífasa riðstraums -rafala, -mótora og -spenna
- tengingum á þessum búnaði
- mælingum á þessum búnaði
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tengja mismunandi þrífasa riðstraums rafvélar og jafnstraums rafvélar
- framkvæma mælingar á þeim
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrifa skýrslur um mismunandi þrífasa riðstraums- og jafnstraums- rafvélar
- leiðbeina um val á mismunandi þrífasa riðstraums og jafnstraums- rafvélum við mismunandi aðstæður
Nánari upplýsingar á námskrá.is