Bifvélavirkjar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnnám bíliðngreina.
Farið er yfir framkvæmd þjónustu- og ástandsskoðana, val á hjólbörðum/felgum og hjólbarðaðviðgerðir. Fjallað um efni og varahluti, kostnaðarmat við framkvæmd ástandsskoðunar og val á hjólbörðum/felgum. Unnin eru verkefni í þjónustu-, ástandsskoðunum og hjólbarðaviðgerðum. Áhersla er lögð á notkun tækniupplýsinga og vönduð vinnubrögð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi reglulegrar þjónustu.
- mikilvægi notkunar á réttum hjólbörðum.
- merkingum á hjólbörðum og felgum.
- efnum sem notuð eru við reglubundna þjónustu.
- virkni og þjónustu á tpms kerfum.
- mikilvægi vandaðra vinnubragða.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- framkvæma reglubundna þjónustu.
- framkvæma ástandsskoðanir.
- kostnaðarmeta viðgerðarþætti eftir ástandsskoðun.
- framkvæma mat og viðgerðir á hjólbörðum. Þjónusta tpms kerfi.
- nota viðeigandi verkfæri/tæki og tækniupplýsingar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- framkvæma reglubundna þjónustu á bifreiðum.
- framkvæma ástandsskoðun og meta kostnað.
- framkvæma hjólbaraðaviðgerðir og ráðleggja um val á hjólbörðum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is