Bifvélavirkjar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Rafmagnsfræði og mælingar, Rafmagn – bilanagreining rafbúnaðar.
Nemandinn þekki virkni rafmótora og rafala í raf- og blendingsbílum, stjórnbúnað þeirra, háspennurafgeyma og annarra íhluta drifbúnaðar slíkra bifreiða. Nemandinn getur á öruggan hátt, á grundvelli þekkingar sinnar á hættum við háspennu, unnið að almennu viðhaldi, bilanagreiningu og viðgerðum háspenntra raf- og blendingsbifreiða. Nemandinn getur framkvæmt allar almennar bilanagreiningar, viðgerðir og viðhald á raf- og blendingsbifreiðum. Nemandi getur fylgt upplýsingum framleiðenda og á grundvelli þeirra framkvæmt niðurlokanir á háspennurafgeymum bifreiðanna.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppbyggingu og virkni allra íhluta drifrásar raf- og blendingsbifreiða, þar með talið: háspennurafgeymi, áriðli/afriðil dc/dc spennubreyti, rafmótor/rafal.
- nemandinn þekki aðferðir til að afla upplýsinga um vinnu við íhluti drifbúnaðar raf- og blendingsbifreiða.
- hættum í vinnu við raf- og blendingsbifreiðar. niðurlokun raf- og blendingsbifreiða.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina bilanir með bilanagreini.
- nota upplýsingar framleiðanda við viðhald raf- og blendingsbifreiða.
- benda á hvern íhlut í drifbúnaði raf- og blendingsbifreiða og skýra út virkni þeirra.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leita bilana í raf- og blendingsbifreiðum með bilanagreini.
- geta framkvæmt almennt viðhald og viðgerðir raf- og blendingsbifreiða.
- geti skipt um íhluti drifbúnaðar raf- og blendingsbifreiða.
- framkvæma niðurlokun hávolta rafgeyma raf- og blendingsbifreiða samkvæmt fyrirmælum framleiðanda.
Nánari upplýsingar á námskrá.is