09.04.2020
Mynd af skólasvæðinu
Stjórnendur FNV hafa lagt fram eftirfarandi áætlun um annarlok á vorönn.
- Fjarkennsla í gegnum Teams í bóklegum áföngum heldur áfram með óbreyttu sniði. Engar hindranir eru í vegi fyrir námslokum nemenda í þessum áföngum.
- Heimavist verður áfram lokuð. Íbúar heimavistar fá senda áætlun um losun herbergja á heimavist í samráði við heimavistarstjóra. Losun herbergja þarf að vera lokið fyrir 18. maí.
- Nemendur í bóknámsáföngum fylgja breyttri námsáætlun viðkomandi áfanga. Öllum verkefnaskilum skal lokið fyrir 13. maí.
- Nemendur i verknámsáföngum fá sendar upplýsingar um fyrirkomulag námsmats eftir páskaleyfi. Unnið er að fyrirkomulagi námsloka í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið.
- Próftafla verður ekki birt, en kennarar í einstökum áföngum senda upplýsingar um fyrirkomulag námsmats. Búast má við að í þeim áföngum sem byggja á lokaprófi í maí muni kennarar ýmist bæta við verkefnum í stað prófs eða vera með blöndu af rafrænu prófi og verkefnum.
- Fjarnámsnemendur sem áttu að fara í lokapróf í maí munu einnig fá sendar upplýsingar um fyrirkomulag námsmats. Búast má við að í þeim áföngum sem byggja á lokaprófi í maí muni kennarar ýmist bæta við verkefnum í stað prófs eða vera með blöndu af rafrænu prófi og verkefnum.
- Brautskráningarnemar munu fá prófskírteini send með pósti í síðustu viku maí, en óvíst er hvernig brautskráningu verður háttað en það ræðst m.a. af því hvenær samkomubanni verður aflétt.