Opinn kynningarfundur á atvinnuflugmannsnámi

Vegna aukinna umsvifa Flugakademíu Keilis í Skagafirði, verðum við með opinn kynningarfund á atvinnuflugmannsnámi á Alexandersflugvelli á Sauðárkróki, fimmtudaginn 7. mars kl. 12 - 13. Þá munum við nota tækifærið og skrifa undir samstarfssamning við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vegna flugnema skólans.Kynning á atvinnuflugmannsnámi
Kjörið tækifæri fyrir áhugasama að kynna sér flugnám í fremstu röð í einum stærsta flugskóla Norðurlanda. Þá verður möguleiki á að skoða flugvélakost skólans. Allir velkomnir.
//
Open information meeting about Professional Pilot Training at KAA in Sauðárkrókur, Iceland at noon on Thursday 7 March.