Skólafundur 2025
Skólafundur 2025

Skólafundur 19.febrúar

Kæru nemendur, við höfum mikinn áhuga að heyra skoðanir ykkar varðandi gildi skólans sem eru vinnusemi, virðing og vellíðan.  Þau eru til umfjöllunar á skólafundinum. Unnið er í 3-5 manna hópum frá kl. 10:30 til 11:30.  Hver hópur skilar veggspjaldi sem getur verið á pappír eða rafrænt (t.d. með Powerpoint eða Canva).  Kennari merkir við mætingu kl. 10:30.  Nemendur sem ekki eru tíma 10:30 skv. stundatöflu eiga samt að taka þátt í skólafundinum með því að mæta í bóknámshús og finna sér stofu. 

Hver 3-5 manna hópur byrjar á að velja sér viðfangsefni sem tengist gildum skólans: vinnusemi, virðingu og vellíðan.  Valið er frjálst en hér eru nokkrar hugmyndir:
 
Hvers vegna eru gildin vinnusemi, virðing og vellíðan mikilvæg í skólanum?

Mikilvægi vinnusemi, virðingar og vellíðunar í áhugamálinu mínu/okkar? Dæmi: Við ástundun íþrótta, leiklistar, tónlistar eða tölvuleikja.

Teiknið/finnið/takið myndir sem sýna gildin vinnusemi, virðingu og vellíðan.

Hvernig er hægt að gera gildin vinnusemi, virðingu og vellíðan sýnilegri í skólastarfinu?

 

Kannið hvaða merkingu gildin hafa, hvað merkja orðin?
Útbúið veggspjald, skriflegt eða rafrænt.  Það er tilvalið að blanda saman texta og myndum.
Pappírsspjöld, litir og fleira til spjaldagerðar er að finna í stofunum.

Þegar veggspjald er klárt:
Veggspjöld á pappír:  Hengið upp á vegg framan við kennslustofuna, hvort sem þið eruð í bóknámshúsi eða verknámshúsi. Bóknámshús: Festið með teiknibólum.  Nemendur á dreifnámsstöðum velja stað í samráði við umsjónarmenn dreifnáms.
Veggspjöld, rafræn:  Sendið til kristjan@fnv.is
 
Skrifuð verður frétt um vinnuna sem verður birt á heimasíðu FNV, þar verða valin veggspjöld sýnileg. 
Rafræn spjöld verða prentuð út og hengd upp.
 
Góða skemmtun, við hlökkum til að heyra skoðanir ykkar og sjá spjöldin ykkar.