Val fyrir haustönn 2019 hefur verið framlengt til klukkan 16:00 föstudaginn 29. mars.
Leiðbeiningar um val eru í handbók Innu.
Leiðbeiningar: Opnið Innu og finnið val fyrir haustönn 2019.
1. Veljið áfanga úr listanum með því að smella á hann.
2. Veljið hvort áfanginn er Aðalval eða Varaval með því að draga hann til.
3. Til að eyða áfanga skal smella á x.
4. Til að fá nánari upplýsingar er farið með músarbendilinn yfir áfangann.
5. Smellið á Vista val þegar búið er að velja alla áfangana.
6. Ath. að fjöldi áfanga í varavali á að vera minnst 1 og mest 3.