Vinnufatnaður og öryggisbúnaður settur á oddinn.
Öryggismál eru stór hluti af náminu í verknámsdeildum FNV og nemendur þurfa að tileinka sér að setja öryggið alltaf á oddinn.
Fimmtudaginn 19. september var formleg afhending þar sem nemendur í tréiðnadeild, málmiðnadeild og rafiðnadeild fengu vinnuföt og öryggisbúnað. Jafnframt var kynning á Bosch verkfærum. Eftirfarandi fulltrúar fyrirtækja afhentu föt, gjafir og kynntu verkfæri. Egill Snær Þorsteinsson, Stefán Erlingsson og Sigurgeir Sigurgeirsson frá Byko, Róbert Halldórsson frá Bosch og Þórhallur Matthíasson fyrir hönd Hilti/Snickers.
Nemendur og kennarar fjölmenntu.
Þorkell Þorsteinsson, staðgengill skólameistara, þakkaði styrktaraðilum fyrir veglegan stuðning.
Þórhallur Matthíasson, sölufulltrúi Haga ehf., lýsti aðkomu Byko og Haga að verkefninu.
Byko og Hagi styrkja verkefnið á landsvísu, líkt og undanfarin ár.
Styrkaraðilar auk Byko, Haga og skólans eru:
Uppsteypa styrkir tréiðnadeild, FISK Seafood og Kjarninn KS styrkja málmiðnadeild, Átak og Tengill styrkja rafiðnadeild.
Mikil ánægja er meðal nemenda og starfsfólks skólans með verkefnið.
Skólinn færir styrktaraðilum bestu þakkir.