Helgarnám í bifvélavirkjun og rafvirkjun

Boðið verður upp á nám með vinnu frá og með haustönn 2019.

Um er að ræða helgarnám í rafvirkjun og bifvélavirkjun.  Nemandi skal vera orðin 23 ára að aldri.

Kennslufyrirkomulag:

Kennt er um helgar og hefst kennsla kl. 15.00 á föstudögum og lýkur kl. 22.00 með hálftíma matarhlé um kl. 19.00.

Á laugardögum hefst kennsla kl. 08:00 og lýkur kl. 18.00.

Á sunnudögum hefst kennsla kl. 08.00 og lýkur kl. 17.00. Báða dagana er klukkustundar hádegishlé um kl. 12.00.

Námsfyrirkomulag:

Kennt er samkvæmt aðalnámskrá og tekur námið fjórar annir. Bæði verklegar og fagbókarlegar greinar eru kenndar í staðlotum.  Aðrar almennar greinar s.s. íslensku, tungumál og stærðfræði þurfa nemendur  að taka í hefðbundnu dagskólanámi, fjarnámi eða hjá símenntunarmiðstöðvum. Í verklegum greinum er skilyrði að nemendur mæti 100%.  Sömu námskröfur eru gerðar til allra nemenda skólans og allir nemendur fara í gegn um sama námsmat. 

Um er að ræða sex helgar á önn.  Skráningargjald er kr. 50.000 á önn

Sótt er um á skrifstofu skólans og í síma 455-8000. Umsóknarfrestur er til 24. maí.

Nánari upplýsingar um nám í bifvélavirkjun veitir: Geir Eyjólfsson í síma 894 5832 og á netfanginu geir@fnv.is

Nánari upplýsingar um nám í rafvirkjun veitir: Garðar Páll Jónsson í síma 894 6206 eða á netfanginu gardar@fnv.is