Handþvottur (Mynd: landlaeknir.is)
Í ljósi þess að Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnarlækni og embætti landlæknis virkjað hættustig almannavarna vegna COVID-19 viljum við vekja athygli á viðbragðsáætlun sem birt er á heimasíðu skólans. Á heimasíðu skólans er einnig að finna leiðbeiningar um varnir gegn sýklum. Þá má á heimasíðu landlæknis finna grunnupplýsingar um kórónaveiruna fyrir börn og ungmenni sem og upplýsingasíðu um COVID-19. Nemendur og starfsfólk FNV er hvatt til að kynna sér upplýsingarnar vandlega og fylgja leiðbeiningum um varnir gegn smiti og grípa til aðgerða ef grunur vaknr um smit.