Mótun nýrrar menntastefnu Skagafjarðar

Nú stendur yfir vinna við mótun nýrrar menntastefnu Skagafjarðar. Menntastefnan er unnin í samstarfi leik-, grunn- og Tónlistarskóla Skagafjarðar, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og frístundar. Ákveðið hefur verið að bjóða til opinna íbúafunda um mótun menntastefnunnar til að fá viðhorf sem flestra inn í stefnumótunarvinnuna.

Foreldrar nemenda á leik-, grunn- og framhaldsskólaaldri eru sérstaklega hvattir til þátttöku á fundunum.

Fundirnir verða haldnir á þremur stöðum:
• Mánudaginn 29. apríl kl. 17:00 -18:00 í Varmahlíðarskóla
• Þriðjudaginn 30. apríl kl. 17:00 -18:00 í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
• Fimmtudaginn 2. maí kl. 17:00 - 18:00 í Grunnskólanum austan Vatna

Helga Harðardóttir kennsluráðgjafi/verkefnastjóri og Ingvi Hrannar Ómarsson kennsluráðgjafi hjá Fræðsluþjónustu Skagafjarðar stýra fundunum.
Kaffi og kleinur í boði.
Allir velkomnir.