Við viljum vekja athygli á þremur valáföngum sem eru í boði á vorönn 2020. Ekki var hægt að velja áfangana á valinu í haust en nemendur geta valið á í töflubreytingum. Áfangarnir sem um ræðir eru:

  • Leiklist, kenndur mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9:45 - 11:10, kennari er Sigulaug Vordís Eysteinsdóttir.
  • Jóga, kenndur mánudaga kl. 16:20 - 17:45, kennari er Guðbjörg Bjarnadóttir.
  • Arduino forritun, tímasetning auglýst síðar, kennarar eru Karítas Björnsdóttir og Sunna Gylfadóttir.