Hanna Þórey Guðmundsdóttir
Hanna Þórey Guðmundsdóttir

Í janúar bættist við nýr starfsmaður, Hanna Þórey Guðmundsdóttir sem tók við starfi upplýsinga- og bókasafnsfræðings við skólann.  Hanna hefur umsjón með rekstri bókasafnsins ásamt því að sjá um skjalavörslu, heimasíðu og samfélagsmiðla FNV.   Hún lauk prófi í bókasafns- ogo upplýsingafræði árið 2001 og hefur fjölbreytta starfsreynslu í sínu fagi.  Við bjóðum Hönnu hjartanlega velkomna til starfa.