Mynd með frétt
Þann 27. mars síðastliðinn samþykkti skólanefnd Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra persónuverndaryfirlýsingu skólans. Persónuverndaryfirlýsinguna má finna hér.
Í persónuverndaryfirlýsingunni má finna ýmis hagnýt atriði er varða persónuverndarmál skólans. Meðal annars hvaða persónuupplýsingum skólinn safnar um einstaklinga vegna starfsemi sinnar og í hvaða tilgangi. Þar má einnig finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað skólinn geymir þær lengi. Auk þess má finna upplýsingar um á hvaða grundvelli skólinn safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Hafi einstaklingar frekari spurningar varðandi persónuverndarmál FNV geta þeir ávallt haft samband við Lee Ann Maginnis, persónuverndarfulltrúa FNV á netfangið personuvernd@fnv.is eða lee@fnv.is.