Söngkeppni framhaldsskólanna verður haldin laugardaginn 13. apríl.  Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsending klukkan 20:55.  Fulltrúi FNV er Ásbjörn Edgar Waage.  Hann mun syngja lagið Last in Line eftir Dio. eins og hann gerði eftirminnilega í FNV keppninni nú í febrúar.

Úrslitin eru í höndum dómnefndar og þjóðarinnar, en með símakosningu er hægt að taka þátt í valinu um sigurvegara.  Söngkeppni framhaldsskólann er nú haldin í 28. sinn og það eru 27 framhaldsskólar sem taka þátt í keppninni. Dómnefnd skipa  Birgitta Haukdal, Björgvin Halldórsson og Bríet.