Iðan fræðslusetur
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst:
- Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í janúar 2021
Umsóknarfrestur er til 4. nóvember 2020
- Í byggingagreinum í janúar 2021
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2020
- Í vélvirkjun í febrúar – mars 2021
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2020
- Í snyrtifræði í febrúar – mars 2021
Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2021
- Í bifvélavirkjun í janúar – febrúar 2021
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2020
- Í hársnyrtiiðn í febrúar – mars 2021
Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2021
Nánari dagsetningar verða birtar á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir.
Með umsókn skal leggja fram afrit námssamnings, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2020.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs, www.idan.is, og á skrifstofu Iðunnar.