Sveinspróf verða haldin í eftirfarandi byggingargreinum í maí og júní ef næg þátttaka fæst:
- Múraraiðn 25.-29. maí
- Pípulagnir 3.-5. júní
- Húsasmíði 5.-7. júní
- Málaraiðn maí/júní
- Húsgagnasmíði júní
- Veggfóðrun og dúkalagnir maí/júní
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2020, óskað er eftir að umsóknir verði sendar í tölvupósti á idan@idan.is eða í bréfpósti.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs, www.idan.is.Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2020.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.
Dagsetningar sem ekki eru fyrirliggjandi verða birtar á heimasíðunni www.idan.is um leið og þær liggja fyrir.