Útivistarhópur í rafting
Boðið er upp á valáfanga í útivist, spinning og styrk og þoli á vorönn 2024
Útivist - ÍÞRÓÚH01
Í þessum áfanga verður aðaláherslan lögð á fjölbreytta útivist með tengingu við okkar nærumhverfi, s.s. gönguferðir og skíðasvæðið í Tindastóli. Farið verður í styttri og lengri ferðir. Lengsta ferðin verður væntanlega Akureyrarferð þar sem við munum kynnast hinum ýmsu vetraríþróttum sem í boði eru.
Tímasetning: Áfanginn er fyrir utan hefðbundna stundaskrá
Áfanganum fylgir kostnaður
Kennari: Anna Hlín
Spinning - ÍÞRÓ1SP01
Spinning er byggt upp á skorpuþjálfun/HIIT sem er frábær leið til þess að byggja upp aukið þol á skömmum tíma. Ef þú vilt komast í stuð með dúndrandi góðri tónlist þá er spinning fyrir þig.
Tímasetning: Mánudagar kl. 11:20
Kennari: Anna Hlín
Styrkur og þol - ÍÞRÓ1ÞR03
Áfangalýsing: Í þessum áfanga er megináherslan á að nemendur fræðist og geti tileinkað sér almenna líkams- og heilsurækt. Þekki mikilvægi hreyfingar fyrir líkama og sál þ.e hvað gerist líffræðilega þegar þeir hreyfa sig. Þekki hvernig eigi að umgangast líkamsræktarsal og hvernig hægt sé að ná árangri í líkamsrækt. Farið verður yfir líkamsbeytingu og grunnatriði hollra lífsvenja.
Tímasetning: Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 09:45
Kennari: Anna Hlín
Skráning og nánari upplýsingar hjá íþróttakennurum (Anna Hlín, Ingvar) eða á skrifstofu skólans.