Dagana 4. – 5. nóvember verður önnur varða haustannar. Gera má ráð fyrir að kennarar boði nemendur í viðtal/verkefni annan hvorn daginn. Nemendur fá vörðueinkunn í einstökum áföngum. Einkunnirnar sem um ræðir eru eftirtaldar auk stuttra umsagna:
G = Gott
T = Tækifæri til umbóta
Ó = Ófullnægjandi
X = Ekki eru forsendur fyrir mati
Það skal tekið fram að vörðueinkunnir hafa ekki áhrif á lokaeinkunn. Tilgangurinn er fyrst og fremst að gefa nemendum hugmynd um stöðu sína á þessum tímapunkti og hvetja til dáða í náminu.
Nemendur eru beðnir um að fylgjast vel með skilaboðum einstakra kennara um boð í viðtöl og/eða verkefnaskil en misjafnt er eftir kennurum hverja þeir óska eftir að fá í viðtal og hvernig verkefnaskilum er háttað. Þeir nemendur sem ekki hafa verið boðaðir í viðtal, en óska eftir því, eru beðnir um að senda skilaboð til viðkomandi kennara þess efnis.
Vinsamlegast athugið að hefðbundin kennsla fellur niður þessa daga.