Heimsókn frá Húnaþingi vestra

Sveitarstjórnarfólk í Húnaþingi vestra í heimsókn
Sveitarstjórnarfólk í Húnaþingi vestra í heimsókn

MIðvikudaginn 25. janúar fékk skólinn til sín góða gesti. Þau Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Elín Jóna Rósinberg og Ingimar Sigurðsson, sveitastjórnarfólk í Húnaþingi vestra, heimsóttu skólann og fengu kynningu á húsnæði og starfsemi skólans undir leiðsögn aðstoðarskólameistara.

Skólinn þakkar þessum góðu gestum fyrir komuna og býður annað sveitarstjórnarfólk á upptökusvæði skólans velkomið í heimsókn.