Heimsókn frá Grunnskóla Húnaþings vestra

Mánudaginn 13. febrúar fékk skólinn góða gesti í heimsókn frá Grunnskóla Húnaþings vestra. Um var að ræða 28 manna hóp úr 8. og 9.bekk. Gestirnir fengu kynningu á námsframboði skólans og nemendafélagið sá um að kynna fyrir þeim skólahúsnæðið og starfsemi nemendafélagsins.

Heimsókninni lauk á heimavistinni þar sem gestirnir fengu hádegismat og skoðunarferð um heimavistina. Skólinn þakkar þessum góðu gestum fyrir komuna.