Próf hefjast samkvæmt próftöflu mánudaginn 7. maí.
Kynnið ykkur prófreglur á heimasíðu skólans.
Lokað verður fyrir einkunnir og námsferla í Innu fram að prófsýningardegi 24. maí.
Helstu reglur eru:
Almennar prófreglur
- Nemendur skulu mæta tímanlega til prófs. Á göngum Bóknámshúss er tilkynnt á töflum hvar próf fara fram.
- Próftími er 90 mínútur.
- Nemendur mega ekki yfirgefa prófstofu fyrr en 45 mínútur eru liðnar af próftímanum.
- Geti nemandi ekki mætt til prófs vegna veikinda, skal hann tilkynna það áður en próf hefst og skila læknisvottorði eins fljótt og mögulegt er.
- Nemendum er óheimilt að hafa töskur með sér í próf, sama gildir um síma, lófatölvur og önnur slík tæki, líka þó slökkt sé á þeim. Yfirsetumenn munu skoða í pennaveski og fletta leyfilegum hjálpargögnum.
- Verði nemandi uppvís að því að hafa rangt við í prófi eða verkefni sem gildir til lokaeinkunnar, varðar það ógildingu prófs eða verkefnis.