Kennari prófar sýndarveruleika
Kennarar og nemendur í áfanga um tölvuleiki og sýndarveruleika,TÖLE2IG05, eru í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og fyrirtækið Myrkur Software. Samstarfið felst m.a. í aðgangi að verkefnum frá HR. Myrkur Software framleiðir kennslumyndir sem eru unnar upp úr inngangsáföngum í HR og veitir ráðgjöf um kennslu. Myrkur Software mun einnig hjálpa til við uppsetningu á sýndarveruleikabúnaði sem notaður verður í áfanganum.
Hér er dæmi um kennslumynd í áfanganum
Í sýndarveruleika er möguleiki á að gera ýmislegt:
Mannslíkaminn
Teikning í þrívídd
Kennarar áfangans eru Grétar og Kristján