Í framhaldi af alvarlegu bílslysi sem átti sér stað í nágrenni Hofsóss s.l. föstudag, þar sem fjórir ungir piltar slösuðust, býður skólinn upp á samverustund í bóknámshúsi skólans þriðjudaginn 15. apríl kl. 17:00. Öll eru velkomin.

Vakin er athygli á hjálparsíma Rauða krossins 1717 en þar er einnig boðið upp á netspjall. Þá er hægt að leita til Heilbrigðisstofnunar á hverjum stað.