12.04.2019
Dagana 8. til 12. apríl fóru 4 nemendur starfsbrautar ásamt 2 kennurum í skólaheimsókn til Eistlands. Ferðin var liður í Nordplus junior verkefni sem 3 lönd taka þátt í, Ísland, Eistland og Finnland.
Verkefnið hófst á því að finnskir og eistneskir nemendur ásamt kennurum komu til Íslands í haust og í framhaldinu var heimsókn til Finnlands og nú að síðustu til Eistlands.
Það hefur verið mjög spennandi og áhugavert að taka þátt í þessu verkefni.
Lesa meira
12.04.2019
FNV minnir á að innritun í framhaldsskóla stendur nú yfir.
Lokainnritun fyrir nemendur sem eru að ljúka 10. bekk stendur yfir frá 6. maí - 7. júní.
Innritun eldri nemenda er frá 7. apríl til 31. maí
Lesa meira
11.04.2019
Söngkeppni framhaldsskólanna verður haldin laugardaginn 13. apríl. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsending klukkan 20:55. Fulltrúi FNV er Ásbjörn Edgar Waage. Hann mun syngja lagið Last in Line eftir Dio eins og hann gerði eftirminnilega í FNV keppninni nú í febrúar.
Úrslitin eru í höndum dómnefndar og þjóðarinnar, en með símakosningu er hægt að taka þátt í valinu um sigurvegara. Söngkeppni framhaldsskólann er nú haldin í 28. sinn og það eru 27 framhaldsskólar sem taka þátt í keppninni. Dómnefnd skipa Birgitta Haukdal, Björgvin Halldórsson og Bríet.
Lesa meira
04.04.2019
FNV minnir á að innritun í framhaldsskóla stendur nú yfir.
Lokainnritun fyrir nemendur sem eru að ljúka 10. bekk stendur yfir frá 6. maí - 7. júní.
Innritun eldri nemenda er frá 7. apríl til 31. maí
Lesa meira
04.04.2019
Próftafla vors 2019 hefur verið birt á heimasíðu skólans.
- Próftími er 90 mínútur
- Veikindi þarf að tilkynna fyrir próf í síma 4558000.
- Kynnið ykkur prófreglur á heimasíðu skólans
- Séróskir þurfa að bera námsráðgjafa með góðum fyrirvara
- Óskir fjarnemenda um prófstaði þurfa að berast með tölvupósti til fjarnam@fnv.is eigi síðar en 7. apríl.
Nemendur geta nú líka séð próftöflu sína í Innu.
Lesa meira
02.04.2019
Þessa vikuna stendur yfir áfangakönnun en áfangakönnunin eru hluti af sjálfsmati FNV. Áfangakannanir eru lagðar fyrir einu sinni á önn í Innu, bæði fyrir nemendur í dagskóla og fjarnámi, þar sem fyrir fram ákveðnir áfangar eru skoðaðir skv. sjálfsmatsáætlun. Að þessu sinni eru það raungreinar, stærðfræði og áfangar kenndir af nýjum kennurum sem eru skoðaðir sérstaklega. Áfangakönnunin er opin til kl. 16:10 á föstudaginn, 5. apríl.
Fulltrúar úr sjálfsmatsteyminu líta í heimsóknir inn í kennslustundir þessa vikuna og kynna áfangakönnunina og er nemendum gefið tækifæri á því að svara könnunum.
Lesa meira
01.04.2019
Jón Gylfi Jónsson lauk nýverið keppni í Íslandsmeistaramóti iðnnema. Hann er í námi við FNV í vélvirkjun og vélstjórn. Jón Gylfi er frá Bessastöðum í Sæmundarhlíð og gekk í Varmahlíðarskóla sem barn. Það lá beint við að fara í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, það var stutt að fara og skólafélagar og vinir fóru flestir þangað. Á Bessastöðum eru um 300 kindur og hefur Jón Gylfi verið virkur við að hjálpa til við sveitarstörfin t.d. rúningu og fleira.
Í vélvirkjun og vélstjórn hefur hann lært að sjóða og smíða úr málmi, t.d. smíða hamar og verkfærakistu. Jón Gylfi klárar vélvirkjun núna í vor og ætlar að halda áfram í vélstjórn. Undanfarin tvö sumur hefur hann unnið á vélaverkstæði enda gott að samþætta nám og vinnu með þeim hætti. Eftir námið í vélstjórn hefur hann réttindi sem vélstjóri á minni báta en fjölbreyttir aðrir atvinnumöguleikar bíða að námi loknu.
Á Íslandsmeistarameistaramóti iðnnema í byrjun mánaðarins vann Jón Gylfi málmsuðuna. Hann segir að það hafi verið skemmtileg reynsla. „Geir (Eyjólfsson) valdi keppendur fyrir hönd skólans og það var gaman að vera valin“. Jón Gylfi hafði þó reynslu af því að taka þátt í svona keppni en hann keppti líka fyrir tveimur árum. Mánuð fyrir keppni var gefið upp hvernig stykki ætti að smíða í keppninni og við tóku æfingar. Gripurinn var smíðaður nokkrum sinnum og þannig þjálfaðist ferlið og gallar voru lagaðir.
Með smá keppnisskap og góðan undirbúning farteskinu var lagt af stað og það skilaði Jóni Gylfa 1. sæti. Hann er ánægður með skólann og kennsluna og segir félagslífið fínt og reynir að taka þátt í þeim viðburðum sem nemendafélagið býður uppá. Næsta haust stefnir hann á Bændaskólann á Hvanneyri en Jón Gylfi segir námið hér vélvirkjun og vélstjórn munir nýtast sér vel í framtíðinni bæði í námi og starfi.
Lesa meira
28.03.2019
Drög að próftöflu vormisseris eru komin hér.
Athugasemdir þurfa að berast til Írisar áfangastjóra eigi síðar en 3. apríl.
Lesa meira
26.03.2019
Val fyrir haustönn 2019 hefur verið framlengt til klukkan 16:00 föstudaginn 29. mars.
Lesa meira
25.03.2019
Nemendur á kvikmyndabraut voru í tökum á stuttmynd þegar fréttamaður leit til þeirra. Þennan daginn fóru fram tökur á stuttmyndinni Loforðið eftir Óla Austfjörð. Tökur fóru meðal annars fram á í heimahúsi starfsmanna FNV og kennarar fengu hlutverk í myndinni. Myndin er ein af fjórum stuttmyndun nemenda á öðru ári. Nemendur unnu handrit á haustönn en á vorönn eru tökur og klipping. Ein mynd er tekin fyrir í einu og sinna nemendur lykilhlutverkum hvert hjá öðru t.d. sem hljóðmenn eða leikarar. Stefnt er að því að valdar myndir verði sýndar á Sæluviku.
Kvikmyndabrautin er 120 feiningar og lýkur með framhaldsskólaprófi á öðru hæfniþrepi. Nemendur hafa möguleika á að bæta við sig námi eftir eða samhliða brautinni og ljúka stúdentsprófi. Meginmarkmið kvikmyndabrautarinnar eru annars vegar að búa nemendur undir störf aðstoðarmanna í kvikmyndagerð og hins vegar að búa nemendur undir frekara nám í kvikmyndagerð og skyldum greinum. Á brautinni er lögð áhersla á fjölbreytni í kvikmyndagreinum s.s. kvikmyndarýni, handritsgerð, sviðshönnun og lýsingu, kvikmyndatöku,klippingu, hljóðvinnslu og hljóðsetningu. Einnig er lögð áhersla á samvinnu við atvinnulífið, einkum við starfandi framleiðslufyrirtæki í kvikmyndagerð.
Árni Gunnarsson er kennari í kvikmyndagerð. Hann rekur einnig kvikmyndafyrirtækið Skotta Film sem staðsett er á Sauðárkróki. Skotta hefur framleitt fjölda kvikmynda en einnig kynningarefni og auglýsingar fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki. Nemendur hafa fengið að taka þátt í verkefnum Skottu og öðlast með því dýrmæta reynslu. Kvikmyndabrautin er því dæmi um vel heppnað samstarf skóla og atvinnulífs. Fleiri kennarar en Árni hafa komið að kennslu á brautinni. Mylen Blanc aðstoðaði við kennslu í hljóðtækni og –vinnslu á vorönn. Mylen er hljóðmaður og kemur frá kvikmyndaskóla í Frakklandi. Hún hefur áður aðstoðað við kennslu á brautinni.
Árni Gunnarsson lærði kvikmyndagerð í Danmörku og hefur áralanga reynslu af kvikmyndagerð, en Skotta kvikmynafjelag var stofnað árið 2004. Árni hefur gert yfir 30 heimildarmyndir og þætti fyrir sjónvarp, bæði hér heima og erlendis. Hann lauk nýverið B.A. prófi í sagnfræði. Í framtíðinni hefur hann áhuga á að vinna sagnfræðileg verkefni á sviði kvikmyndagerðar. Áhugamál Árna eru margvísleg svo sem útivist og tónlist. Hann samdi rokksöngleik sem sýndur var í reiðhöllinni og á menningarnótt árið 2005. Nú er von á fleiri lögum frá Árna, en þessa dagana vinnur hann að útgáfu kántrýrokks þar sem hann semur bæði lög og texta.
Lesa meira