Opinn kynningarfundur á atvinnuflugmannsnámi

Vegna aukinna umsvifa Flugakademíu Keilis í Skagafirði, verðum við með opinn kynningarfund á atvinnuflugmannsnámi á Alexandersflugvelli á Sauðárkróki, fimmtudaginn 7. mars kl. 12 - 13. Þá munum við nota tækifærið og skrifa undir samstarfssamning við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vegna flugnema skólans.
Lesa meira

Kíkt í kennslustund

Spænskukennsla í FNV er í höndum David Hidalgo Rodriguez. David býr á Bifröst en kennir nemendum í FNV í gegnum fjarfundabúnað, en nemendurnir eru í kennslustofum á Sauðárkróki og í námsverum á Blönduósi, Hvammstanga eða Hólmavík. Ljósmyndari hitti á David og nemendur í kennslustund þegar David brá sér á Krókinn til að hitta nemendur. David leggur áherslu á fjölbreytta og óþvingaða nálgun með áherslu á að skapa áhuga á efninu. Nemendur fá nauðsynlegan grunn í málfræði og efla lesskilning. Sem dæmi um verkefni má nefna myndakeppni þar sem nemendur taka ljósmyndir og útskýra hvers vegna þeir völdu myndefnið. David byrjar hverja kennslustund á að kynna þrjá meginþætti kennslustundarinnar og síðan er hafist handa. Námsefni nemenda er námsbók, glósur og ýmis konar efni á netinu sem David miðlar með hjálp námsvefsins Moodle. David er frá borginni Salamanca á Spáni en þangað tekur tvær klukkustundir að aka frá Madrid. Savid lauk mastersprófi við háskólann í Salamanca en fór síðan í háskóla í Viga (Universida de Vigo) og lauk þar doktorsprófi í sagnfræði. Doktorsritgerð hans var um þróun stjórnarfars, frá einræði til lýðræðis. David býr með Noemí sem er spænsk og kennir ensku við Menntaskóla Borgarfjarðar. David kennir einnig við Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Lesa meira

Forritunarkeppni framhaldsskólanna

Forritunarkeppni framhaldsskólanna 2019 verður haldin í Háskólanum í Reykjavík 23. mars.
Lesa meira

Eldrósir á konudag

Karlar í hópi starfsmanna FNV buðu samstarfskonum í kaffi föstudaginn 22. febrúar í tilefni konudags. Konunum voru afhentar eldrósir sem karlarnir smíðuðu undir dyggri stjórn málmiðnkennara. Efniviður eldrósar er 5mm stálteinn og 0,8 mm stálplötur sem eru skornar til til að mynda blóm og laufblöð. Blóm og laufblöð eru soðin við stöngulinn. Blómin og blöðin eru beygð í eldi. Þá er sandbláið til að losa eldhúð burt. Loks er rósin sett í eld til að bláma.
Lesa meira

Ljósmyndakeppni nemenda

Ljósmyndakeppni nemenda FNV er hafin og stendur til 17. mars. Allir skráðir nemendur skólans geta tekið þátt. Þema keppninnar er Fjör í FNV. Keppnisreglur 1. Hver keppandi skilar 1-3 myndum úr skólalífi FNV. 2. Allir skráðir nemendur skólans eru gjaldgengir í keppnina. 3. Myndunum skal skal skilað á rafrænu formi sem viðhengi í fullri stærð í gegnum fnvkeppni@gmail.com fyrir miðnætti mánudaginn 17. mars. 4. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hefur birtingarrétt á öllum myndum sem berast í keppnina og áskilur sér rétt til að nota þær í kynningarskini. Áður en er til birtingar kemur þarf FNV að afla samþykkis þeirra sem birtast á myndunum nema um hópmyndir sé að ræða. 5. Við skil á myndum þarf að fylgja nafn höfundar og þeirra einstaklinga sem birtast á myndunum. Ekki er þörf á nafnalista fyrir hópmyndir. 6. Dómnefnd er skipuð einum nemanda, einum starfsmanni FNV og einum ljósmyndara. Ein verðlaun eru í boði en það er glæsileg myndavél, CANON, EOS 4000D sem gefin er af Origo og Tengli ehf. Nánari upplýsingar um vélina verða gefnar síðar. Verðlaunaafhending fer fram á sal skólans mánudaginn 25. mars kl. 09:30.
Lesa meira

Glæsileg söngkeppni

Söngkeppni FNV fór fram föstudaginn 15. febrúar. Fjöldi atriða var 13 og kenndi þar margra grasa, allt frá klassísku rokki til rapps með viðkomu í poppi. Kynnar kvöldsins voru Rebekka Ósk Rögnvaldsdóttir og Bergljót Ásta Pétursdóttir. Dómnefndina skipuðu Helgi Sæmundur Guðmundsson, Stefán Gíslason og Helga Rós Sigfúsdóttir. Reynir Snær Magnússon kom fram ásamt kærustu sinni Elínu Sif Halldórsdóttur, söngkonu og leikara en hún vann Söngkeppni framhaldsskóla árið 2015. Reynir Snær er fyrrum nemandi FNV og fór á kostum í hljómsveit söngkeppninnar á sínum tíma. Reynir Snær stundar nú nám við listaháskóla í Liverpool. Þá flutti sigurvegarinn frá því fyrra, Valdís Valbjörnsdóttir, lagið Shallow með Lady Gaga. Keppnin fór fram fyrir troðfullu húsi og var afar jöfn og hörð. Dómnefndin átti að vanda erfitt með að gera upp á milli keppenda en niðurstaða hennar var sú að í fyrsta sæti hafnaði Ábjörn Edgar Waage með lagið Last in Line með Tenacious D. Í öðru sæti hafnaði Áróra Árnadóttir með lagið Always Remember Us This Way með Lady Gaga og í þriðja sæti höfnuðu bræðurnir Róbert Smári og Ingi Sigþór Gunnarssynir með lagið Minning eftir Mugison, Björgvn Halldórsson og Bob Dylan. Óhætt er að segja að áhorfendur hafi skemmt sér vel og keppnin ber vott um það gróskumikla starf sem fram fer á vegum Nemendafélags FNV. Stjórn nemendafélagsins fær bestu þakkir fyrir frábæran undirbúning og framkvæmd keppninnar. Atriði kvöldsins eru: Sæþór Már Hinriksson Dáinn úr ást - Sæþór Már Hinriksson Óli Bjarki Austfjörð Ekkert breytir því - Sálin hans Jóns míns Anna Margrét Hörpudóttir og Dagmar Ólína Gunnlaugsdóttir What now - Rihanna Magnús Þór Björnsson Revelations - Iron Maiden Áróra Árnadóttir Always remember us this way - Lady Gaga Pálmi Ragnarsson Bitch lasagna - Pewdiepie Rannveig Sigrún Stefánsdóttir Somebody to love - Queen Róbert Smári Gunnarsson og Ingi Sigþór Gunnarsson Minning - Mugison, Björgvin Halldórsson (Bob Dylan) Ásbjörn Edgar Waage Last in line - Tenacious D Helgi Hrannar Ingólfsson All i have - NF Ingi Sigþór Gunnarsson Fortíðaróður - Sveinn Rúnar Gunnarsson Atli Dagur Stefánsson House of the rising sun - The Animals Eysteinn Ívar Guðbrandsson og Víkingur Ævar Vignisson Þú verður tannlæknir - Laddi
Lesa meira

Ljósmyndakeppni

Ljósmyndakeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á vorönn 2019 Fram til til 17. mars 2019 fer fram ljósmyndkeppni meðal nemenda FNV. Allir skráðir nemendur skólans geta tekið þátt. Þema keppninnar er Fjör í FNV. Keppnisreglur 1. Hver keppandi skilar 1-3 myndum úr skólalífi FNV. 2. Allir skráðir nemendur skólans eru gjaldgengir í keppnina. 3. Myndunum skal skal skilað á rafrænu formi sem viðhengi í fullri stærð í gegnum fnvkeppni@gmail.com fyrir miðnætti mánudaginn 17. mars. 4. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hefur birtingarrétt á öllum myndum sem berast í keppnina og áskilur sér rétt til að nota þær í kynningarskini. Áður en er til birtingar kemur þarf FNV að afla samþykkis þeirra sem birtast á myndunum nema um hópmyndir sé að ræða. 5. Við skil á myndum þarf að fylgja nafn höfundar og þeirra einstaklinga sem birtast á myndunum. Ekki er þörf á nafnalista fyrir hópmyndir. 6. Dómnefnd er skipuð einum nemanda, einum starfsmanni FNV og einum ljósmyndara. Ein verðlaun eru í boði en það er glæsileg myndavél sem gefin er af Origo og Tengli ehf. Nánari upplýsingar um vélina verða gefnar síðar. Verðlaunaafhending fer fram á sal skólans mánudaginn 25. mars kl. 09:30.
Lesa meira

Gert klárt fyrir söngkeppni

Söngkeppnin fer fram föstudaginn 15. febrúar kl. 20. Undirbúningur fyrir söngkeppni hefur staðið yfir frá því fyrir áramót hjá nemendaráði NFNV. Keppendur byrjuðu að æfa lögin í annarrri viku janúar. Fjöldi atriða er 13 og kennir þar ýmissa grasa.
Lesa meira

Finnlandsferð starfsbrautar

Fjórir nemendur starfsbrautar FNV fóru ásamt tveimur kennurum til Finnlands dagana 4-8. febrúar sl. Ferðin var liður í Nordplus junior verkefni sem starfsbrautin tekur þátt í ásamt finnskum og eistneskum skóla.
Lesa meira

Nýr starfsmaður

Í janúar bættist við nýr starfsmaður, Hanna Þórey Guðmundsdóttir sem tók við starfi upplýsinga- og bókasafnsfræðings við skólann. Hanna hefur umsjón með rekstri bókasafnsins ásamt því að sjá um skjalavörslu, heimasíðu og samfélagsmiðla FNV. Hún lauk prófi í bókasafns- og upplýsingafræði árið 2001 og hefur fjölbreytta starfsreynslu í sínu fagi. Við bjóðum Hönnu hjartanlega velkomna til starfa.
Lesa meira