15.02.2019
Ljósmyndakeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á vorönn 2019
Fram til til 17. mars 2019 fer fram ljósmyndkeppni meðal nemenda FNV. Allir skráðir nemendur skólans geta tekið þátt.
Þema keppninnar er Fjör í FNV.
Keppnisreglur
1. Hver keppandi skilar 1-3 myndum úr skólalífi FNV.
2. Allir skráðir nemendur skólans eru gjaldgengir í keppnina.
3. Myndunum skal skal skilað á rafrænu formi sem viðhengi í fullri stærð í gegnum fnvkeppni@gmail.com fyrir miðnætti mánudaginn 17. mars.
4. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hefur birtingarrétt á öllum myndum sem berast í keppnina og áskilur sér rétt til að nota þær í kynningarskini. Áður en er til birtingar kemur þarf FNV að afla samþykkis þeirra sem birtast á myndunum nema um hópmyndir sé að ræða.
5. Við skil á myndum þarf að fylgja nafn höfundar og þeirra einstaklinga sem birtast á myndunum. Ekki er þörf á nafnalista fyrir hópmyndir.
6. Dómnefnd er skipuð einum nemanda, einum starfsmanni FNV og einum ljósmyndara.
Ein verðlaun eru í boði en það er glæsileg myndavél sem gefin er af Origo og Tengli ehf. Nánari upplýsingar um vélina verða gefnar síðar.
Verðlaunaafhending fer fram á sal skólans mánudaginn 25. mars kl. 09:30.
Lesa meira
14.02.2019
Söngkeppnin fer fram föstudaginn 15. febrúar kl. 20. Undirbúningur fyrir söngkeppni hefur staðið yfir frá því fyrir áramót hjá nemendaráði NFNV. Keppendur byrjuðu að æfa lögin í annarrri viku janúar. Fjöldi atriða er 13 og kennir þar ýmissa grasa.
Lesa meira
14.02.2019
Fjórir nemendur starfsbrautar FNV fóru ásamt tveimur kennurum til Finnlands dagana 4-8. febrúar sl. Ferðin var liður í Nordplus junior verkefni sem starfsbrautin tekur þátt í ásamt finnskum og eistneskum skóla.
Lesa meira
12.02.2019
Í janúar bættist við nýr starfsmaður, Hanna Þórey Guðmundsdóttir sem tók við starfi upplýsinga- og bókasafnsfræðings við skólann. Hanna hefur umsjón með rekstri bókasafnsins ásamt því að sjá um skjalavörslu, heimasíðu og samfélagsmiðla FNV. Hún lauk prófi í bókasafns- og upplýsingafræði árið 2001 og hefur fjölbreytta starfsreynslu í sínu fagi. Við bjóðum Hönnu hjartanlega velkomna til starfa.
Lesa meira
15.02.2019
-
15.02.2019
Söngkeppni NFNV verður haldin í sal skólans föstudaginn 15. febrúar. Húsið opnar kl. 19:30 og dagskrá hefst kl. 20:00.
Lesa meira
11.02.2019
Húsgagnaviðgerðir (HGV102) námskeið á vorönn 2019
Viltu læra um orsakir og eðli skemmda á húsgögnum, greining þeirra og hvernig ber að standa að viðgerðum með
hliðsjón af þeirri efnisnotkun og vinnuaðferðum sem upphaflega voru viðhafðar.
Forvarnir varðandi húsgögn og viðmið sem skapast. Farið verður yfir pússningu, yfirborðsmeðhöndlun, helstu efni
og áhöld sem notuð eru við viðgerðir. Lögð er áhersla á að nemendur fái yfirsýn yfir fagsviðið og geti komið með
heildarlausnir fyrir viðskiptavini. Námskeiðið er bóklegt og verklegt og krefst þess að nemendur skili inn verkefnum
að námskeiði loknu. Námskeiðið er sniðið að þörfum húsgagnasmiðanemenda en öllum er frjálst að taka þátt.
Námskeiðið er metið til framhaldsskólaeininga.
Skráning fer fram hjá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í síma 455-8000 og lýkur miðvikudaginn 20. Mars.
Kennsla fer fram föstudaginn 22. mars kl. 17:00-21:00, laugardaginn 23. mars kl. 08:00-17:00
og sunnudaginn 24. mars kl. 08:00-17:00 Þátttökugjald er 15.000 kr.
Frekari upplýsingar veitir Karítas S. Björnsdóttir í síma 865-0619
Lesa meira
29.01.2019
Á haustönn var unnið ytra mat á starfsemi skólans.
Lesa meira
23.01.2019
Nokkrir nemendur og kennarar FNV fóru í skólaheimsókn til Finnlands þann 19. janúar.
Lesa meira
08.01.2019
-
08.01.2019
Nemendur setja fram óskir um töflubreytingar í Innu.
Lesa meira
07.01.2019
-
07.01.2019
Kennsla á vorönn hefst mánudaginn 7. janúar klukkan 8:00.
Nemendur setja fram óskir um töflubreytingar í Innu. Sjá leiðbeiningar á heimasíðu, www.fnv.is Nemendur setja fram óskir um töflubreytingar í Innu.
Lesa meira