21.05.2019
Prófsýning verður haldin fimmtudaginn 23. maí kl. 09:00-10:00. Opnað verður fyrir einkunnir í INNU eftir hádegi miðvikudaginn 22. maí.
Lesa meira
17.05.2019
Það er létt yfir nemendum við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í dag. Prófin að baki og tími til að lyfta sér upp. Væntanlegir útskriftarnemendur brugðu sér í búning í morgun. Gengu um bæinn og kvöddu kennarana sína.
Lesa meira
16.05.2019
Brautskráning og skólaslit verða föstudaginn 24. maí kl. 14:00 í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Allir velunnarar skólans velkomnir
Skólameistari
Lesa meira
09.05.2019
Í FNV er metnaðarfull og fjölbreytt kennsla í iðngreinum. Iðnnám er góð undirstaða undir annað nám en opnar einnig dyr fyrir fjölbreyttum atvinnumöguleikum eitt og sér. Strákar hafa verið duglegir að sækja í verknámið en stelpur eru enn í miklum minnihluta. Thelma Rán Brynjarsdóttir er þó ein fárra stelpna sem ákvað að skella sér í iðnnám. Við ákváðum að forvitnast aðeins meira um hana.
Thelma Rán Brynjarsdóttir er 22 ára. Hún ólst að mestum hluta upp í Reykjavík en kom í Skagafjörðinn í sveit sem barn. Pabbi hennar og stjúpmóðir fluttu til Skagafjarðar og því tók hún 10. bekk á Hofsósi og líkaði vel.
Thelma Rán er að læra vélvirkjun og tekur einnig vélstjórnarréttindi B en það gefur m.a. réttindi til að gegna stöðu vélstjóra á skipum með vélarafl allt að 1500 kw en þó stefnir hún ekki á sjóinn. Þessi menntun gefur Thelmu fjölbreytta möguleika á atvinnu, t.d. er hægt að vinna á vélaverkstæði, slipp eða sinna almennri málmsmíði. Síðasta sumar vann hún í Blönduvirkjun og ætlar þangað aftur í sumar og þá tekur hún hluta tímans sem hún þarf að vera á samning til að uppfylla kröfur til sveinsprófs. Hún segir að það sé áhugaverð vinna og gott tækifæri að fá að spreyta sig þar.
Þegar Thelma valdi nám að grunnskóla loknum fannst henni mikilvægt að velja nám sem væri hagnýtt ásamt því að ljúka stúdentsprófi. Verknám nýtist vel þeim sem ætla að búa í sveit en þangað stefnir hugurinn. Thelma sér fram á að málmsmíði og vélvirkjun sé þekking sem komi henni að góðum notum í sveitastörfum framtíðarinnar. Pabbi hennar og stjúpmóðir búa í Miðhúsum í Blönduhlíð þar sem hún hefur kynnst sveitastörfum en sjálf býr hún núna í Valagerði með kærasta sínum. Í Valagerði eru hross og hún nýtur þess að nýta frítímann í að ríða út.
Aðspurð út í námið segir Thelma að það sé mjög fjölbreytt, bæði verklegir tímar og bóklegt. Í verklegum tímum hafi þau til að mynda lært að búa til grill, hamar og lóð. Einnig er plötuvinnan skemmtileg og að sjóða. Í bóklegu tímunum læra þau vélstjórn, vökvafræði og ýmislegt er varðar skipsvélar. Þau hafa aðgang að hermi þar sem þau koma upp vél og starta henni, sumt af þessu getur verið flókið en þetta er skemmtilegt nám og kennararnir fínir. Verklegu tímarnir eru þeir skemmtilegustu t.d. plötuvinna og málmsuða, það er gaman að vinna með höndunum og þannig lærir maður mest.
Það hafa ekki verið margar stelpur í verknáminu með Thelmu en það kemur ekki að sök því nemendahópurinn er góður og hún er tekinn inn í hópinn bæði af samnemendum og kennurum. Thelma segir að stelpur þurfa bara að gefa verknáminu séns, maður veit ekki hvað maður vill fyrr en maður prófar. Hún tekur þó fram að maður mætir ekki skólann í hælaskóm og skyrtu.
Lesa meira
09.05.2019
Anastasia Pistofidou frá Fab Lab Barcelona heldur erindi um Fabricademy og framtíð textíls og tækni.
Erindið verður haldið þriðjudaginn 14. maí kl. 11:00-12:00 í fyrirlestrasal (kjallar) Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Allir áhugasamir eru velkomnir.
Lesa meira
07.05.2019
Innritun í fjarnám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra stendur yfir.
Boðið er upp á fjarnám í fjölmörgum bóklegum áföngum við skólann, sjá nánar á http://www.fnv.is/static/files/annarskipt/afangar_i_bodi_haust_2019_fjarnam.pdf. Sérstök athygli er vakin á því að nýr hópur fer af stað í sjúkraliðanámi með fjarnámssniði á haustönn. Nánari upplýsingar á fjarnam@fnv.is og í síma 455-8000.
Lesa meira
03.05.2019
Boðið verður upp á nám með vinnu frá og með haustönn 2019.
Um er að ræða helgarnám í rafvirkjun og bifvélavirkjun. Nemandi skal vera orðin 23 ára að aldri.
Kennslufyrirkomulag:
Kennt er um helgar og hefst kennsla kl. 15.00 á föstudögum og lýkur kl. 22.00 með hálftíma matarhlé um kl. 19.00.
Á laugardögum hefst kennsla kl. 08:00 og lýkur kl. 18.00.
Á sunnudögum hefst kennsla kl. 08.00 og lýkur kl. 17.00. Báða dagana er klukkustundar hádegishlé um kl. 12.00.
Námsfyrirkomulag:
Kennt er samkvæmt aðalnámskrá og tekur námið fjórar annir. Bæði verklegar og fagbókarlegar greinar eru kenndar í staðlotum. Aðrar almennar greinar s.s. íslensku, tungumál og stærðfræði þurfa nemendur að taka í hefðbundnu dagskólanámi, fjarnámi eða hjá símenntunarmiðstöðvum. Í verklegum greinum er skilyrði að nemendur mæti 100%. Sömu námskröfur eru gerðar til allra nemenda skólans og allir nemendur fara í gegn um sama námsmat.
Um er að ræða sex helgar á önn. Skráningargjald er kr. 50.000 á önn
Sótt er um á skrifstofu skólans og í síma 455-8000. Umsóknarfrestur er til 24. maí.
Nánari upplýsingar um nám í bifvélavirkjun veitir: Geir Eyjólfsson í síma 894 5832 og á netfanginu geir@fnv.is
Nánari upplýsingar um nám í rafvirkjun veitir: Garðar Páll Jónsson í síma 894 6206 eða á netfanginu gardar@fnv.is
Lesa meira
03.05.2019
Eftir glæsilegan framboðsfund í gær var kosin ný stjórn í Nemendafélag FNV. Kosningaþátttaka var góð og gaman var að fylgjast með líflegri kosningabaráttu.
Í nýrri stjórn eru:
Formaður: Rebekka Ósk
Varaformaður/ritari: Anna Sóley
Skemmtanastjóri: Bergljót Ásta
Gjaldkeri: Þórkatla Björt
Ritstjóri: Sylvía Rut
Tækniformaður: Víkingur Ævar
Íþróttaformaður: Hákon Ingi
Ný stjórn er spennt fyrir nýju hlutverki og nemendur mega búast við góðu félagslífi næsta skólaár.
Lesa meira
02.05.2019
Félagslíf nemenda við FNV hefur verið öflugt í vetur. Skólinn ákvað að efla til ljósmyndasamkeppni meðal nemenda til að fanga góðu augnablikin út frá sjónarhóli nemenda.
Mynd Laufeyjar Hörpu Halldórsdóttur úr söngkeppninni FNV bar sigur úr býtum. Þar sjást tilþrif Ásbjörns Waage og stemmingin á sviðinu skilar sér vel á myndinni.
Laufey Harpa tekur mikið af myndum og hefur haft það að áhugamáli síðan hún var lítil. Henni finnst mjög gaman að mynda landslagið og fallegan og litríkan himinn. Laufey er dugleg að mynda viðburði á vegum nemendafélagsins og hafa margar myndir eftir hana birst í Molduxa, skólablaði nemenda, í nýjasta tölublaði og eldri blöðum.
Tengill og Origo gáfu vinningshafa rausnarlega gjöf en það var Canon 4000 D myndavél, en hún er notendavæn myndavél sem er tilvalin til að fanga og deila sögum með alvöru lit og fallegum smáatriðum.
Lesa meira
29.04.2019
Nú á fimmtudaginn 2. maí verður haldin aðalfundur Nemendafélags FNV og verður kosið til nýrrar stjórnar. Þrettán nemendur eru í framboði en embættin eru sjö
Í framboði eru:
Formaður: Rebekka Rögnvaldsdóttir
Varaformaður: Anna Sóley Jónsdóttir
Skemmtanastjóri: Birgitta Björt Pétursdóttir og Bergljót Ásta Pétursdóttir
Gjaldkeri: Þórkatla Björt Sumarrós Þrastardóttir og Ingi Sigþór Gunnarsson
Ritstjóri: Sylvía Rut Gunnarsdóttir
Tækniformaður: Guðmundur Helgi Þorbergsson og Víkingur Ævar Vignisson
Íþróttaformaður: Elín Marta Ólafsdóttir, Hákon Ingi Rafnsson og Eysteinn Ívar Guðbrandsson
Áherslur hjá frambjóðendum eru svipaðar en það er að efla félagslífið hjá nemendum enda er gott félagslíf mikilvægur hluti skólagöngunnar.
Lesa meira